Davíð og Golíat og Míla hafa gert samning sín á milli um aðstöðuleigu fyrir kerfi og skápa Davíð og Golíat í Múlastöð. Allur tækjabúnaður Davíð og Golíat hefur verið fluttur í Múlastöð þar sem DG hefur sett upp skápa. Þess má geta að Davíð og Golíat fékk á dögunum skráningu hjá Póst og fjarskiptastofnun sem fjarskiptafyrirtæki. Skáparnir í Múlastöð tryggja DG aðgang að háhraðanetum frá öllum veitum og þeim möguleika að bjóða upp á alhliða fjarskiptaþjónustu til viðskiptavina sinna. Múlastöð hýsir kjarna helstu fjarskiptafyrirtækja landsins og er útbúin með hæðsta öryggi í huga.
Fréttir af D&G
Davíð og Golíat og Míla hafa gert samning sín á milli um aðstöðuleigu
- Mánudagur, 31. maí 2010 00:00
Kostur með nýja heimasíðu
- Þriðjudagur, 25. maí 2010 00:00
Ný heimasíða Kosts var opnuð um hvítasunnnuhelgina. Síðan var smíðuð af Davíð og Golíat og keyrir á Aron vefumsjónarkerfinu. Á síðunni er uppskriftakerfi sem gerir starfsmönnum Kosts kleift að setja inn mataruppskriftir og halda utan um þær. Öflugur póstlisti er á síðunni sem býður upp á að senda reglulega upplýsingar um tilboð og nýjar vörur til viðskiptavina. Þessa dagana er hægt að hlusta á eurovison rásina í gegnum vef Kosts. Davíð og Golíat óskar Kost til hamingju með nýju síðuna.
Davíð og Golíat fær fjarskiptaleyfi. Áforma að bjóða net og símaþjónustu
- Mánudagur, 17. maí 2010 00:00
Davíð og Golíat hefur fengið skráningu hjá Póst og fjarskiptastofnun sem fjarskiptafyrirtæki. Skráningin gerir fyrirtækinu kleift að hefja rekstur síma og netþjónustu. Markmið DG er að bjóða heildar tölvu og fjarskipta þjónustu til viðskiptavina. Áform um síma og netþjónustu samræmist vel þeim þjónustum sem DG býður upp á. Í dag býður DG upp á hýsingar-, vefsíðu-, afritunar-, öryggis- og tölvu-þjónustu til viðskiptavina sinna ásamt heildarráðgjöf í tölvu og fjarskiptamálum.



